1. Forsíða
  2. Fréttir
  3. Tímamót hjá Nesfiski í Garði

Tímamót hjá Nesfiski í Garði

11. nóvember 2021

Nýr frystitogari bætist í flotann, fyrsta nýsmíði fjölskyldufyrirtækisins á skipi af þessari stærð.

Tímamót verða hjá Nesfiski í Garði síðar í mánuðinum er nýr frystitogari bætist í flotann. Nýja skipið er fullkomið í alla staði og um leið fyrsta nýsmíði þessa 35 ára gamla fjölskyldufyrirtækis á skipi af þessari stærð. Samfellda sögu má reyndar rekja aftur til 1973 þegar Baldvin Njálsson og Þorbjörg Bergsdóttir kona hans og fjölskylda þeirra byrjuðu með útgerð og fiskvinnslu.

Skipið er smíðað hjá skipasmíðastöðinni Armon í Vigo á Spáni og lýkur Bergþór Baldvinsson framkvæmdastjóri lofsorði á samstarfið. Afhendingartíminn sé nánast upp á dag sá sami og miðað var við þegar skrifað var undir samninga fyrir tveimur árum. Sævar Birgisson og samstarfsfólk hans hjá Skipasýn hönnuðu skipið.

Bergþór Baldvinsson segir nýsmíði frystitogarans stórt skref fyrir Nesfisk.
Bergþór Baldvinsson segir nýsmíði frystitogarans stórt skref fyrir Nesfisk.

Meðal stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins

Nesfiskur er meðal stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins með tæplega 11 þúsund þorskígildistonn. Fyrirtækið er í 15. sæti yfir úthlutaðar aflaheimildir. Nesfiskur rekur fiskvinnslu í Garði og á tveimur stöðum í Sandgerði, Ný-Fisk og Fiskverkun Ásbergs. Afurðirnar eru ýmist seldar frystar, ferskar eða saltaðar. Þá á Nesfiskur rækjuvinnsluna Meleyri á Hvammstanga.

Alls starfa yfir 300 manns hjá Nesfiski og hafa margir starfsmennirnir verið lengi hjá fyrirtækinu. Nesfiskur er umsvifamikill í atvinnulífi Suðurnesjabæjar, sem varð til við sameiningu Garðs og Sandgerðis.

Mikið rými er í brú nýja skipsins þaðan sem sést til allra átta. Ljósmynd/Magnús Þór Bjarnason.
Mikið rými er í brú nýja skipsins þaðan sem sést til allra átta. Ljósmynd/Magnús Þór Bjarnason.

Mörg skipanöfnin tengjast fjölskyldunni

Saga fjölskyldu eigendanna speglast í nöfnum skipanna. Nýja skipið ber nafn Baldvins. Pálína Þórunn og Bergur Vigfús bera nöfn foreldra Þorbjargar. Margrét var systir Þorbjargar og nafnið á Dóra kemur líka úr hennar ætt.

Hvatti til nýsmíðinnar

Þorbjörg Bergsdóttir stjórnarformaður Nesfisks, gjarnan kölluð Bobba í Nesfiski, segir það mikinn áfanga að fá nýjan, fullkominn frystitogara. Hún segist hafa hvatt til nýsmíðinnar. Þegar fyrirtækið fjárfesti síðast í nýsmíði var Bergþór framkvæmdastjóri sex ára. Það skip bar nafnið Benedikt Sæmundsson og var smíðað í Bátalóni í Hafnarfirði.

Skipið er hið glæsilegasta. Ljósmynd/Magnús Þór Bjarnason.
Skipið er hið glæsilegasta. Ljósmynd/Magnús Þór Bjarnason.

Endursagt úr 200 mílum á mbl.is.