1. Forsíða
  2. Fréttir
  3. Byrja á nokkrum prufutúrum

Byrja á nokkrum prufutúrum

10. desember 2021

Nýr Baldvin Njálsson GK – áætlaðar veiðar á fullum afköstum strax eftir áramót.

Baldvin Njálsson GK 400 er nýjasta viðbótin í fiskiskipaflota Íslendinga. Arnar Óskarsson skipstjóri, sem áður var á eldra skipi með sama nafni sem nú hefur verið selt til Rússlands, sigldi skipinu heim frá Spáni ásamt áhöfn sinni. Hann líkir reynslunni við að fara af 31 árs gömlu skipi yfir á það nýja við það að skipta Fiat Panda út fyrir Audi e-tron.

Til stendur að fara í tvo 6–7 daga prufuveiðitúra með sitt hvorri áhöfninni til að menn kynnist skipinu og öðrum vinnubrögðum. Svo verður keyrt á veiðar á fullum afköstum strax eftir áramót.

Allt flokkað á brettum

Nýr Baldvin Njálsson GK við komuna heim til Íslands. Mynd/Elvar Jósefsson.
Nýr Baldvin Njálsson GK við komuna heim til Íslands. Mynd/Elvar Jósefsson.

„Skipið er mjög tæknilega útbúið og það tekur vissan tíma að læra á það. Vinnan er sú sama í fiskinum en tæknin léttir samt mikið vinnuna. Mesta breytingin fyrir mannskapinn er að losna við allar lyftingar í lest. Það þarf hvorki að lyfta kössum né pönnum og allur frágangur á afurðunum verður mikið betri. Varan er tilbúin á brettum, afurðaflokkuð og plöstuð og tilbúin í gám.“

„Það þarf ekki nema 3–4 karla núna við löndun meðan þeir voru kannski 10–12 áður. Áður var grófflokkað í fjóra flokka en nú getum við flokkað í 8–10 stærðarflokka,“ segir Arnar.

Lætur vel í sjó

Þeir hrepptu vond veður á heimleiðinni fyrstu þrjá sólarhringana en Arnar segir skipið hafa látið einstaklega vel í sjó. Skrúfan er 5 metrar í þvermál og sagt hefur verið að nýr Baldvin Njálsson verði í hópi sparneytnustu skipa í íslenska fiskiskipaflotanum.

Arnar Óskarsson skipstjóri. Aðsend mynd.
Arnar Óskarsson skipstjóri. Aðsend mynd.

26 manns eru í áhöfn skipsins hverju sinni. Skipstjóri á móti Arnari er Þorsteinn Eyjólfsson. Í skipinu eru tvær stórar setustofur, líkamsrækt og gufubað og vistarverurnar eru allar aftast í skipinu.

Öflugara og eyðslugrennra skip

Bergþór Baldvinsson framkvæmdastjóri segir nýja skipið öflugra á allan hátt og með stórri skrúfu sem geri það hagkvæmara í rekstri. Í því er vöruhótel sem skilar afurðunum pökkuðum á bretti. Vinnslubúnaðurinn er framleiddur af Optimar í Noregi og Klaki ehf. í Kópavogi framleiðir öll færibönd og stóran hluta búnaðar á millidekkinu.

Minni olíunotkun

Sævar Birgisson, framkvæmdastjóri Skipasýnar, segir meginmuninn vera vöruhótel í tveimur lestum þar sem flokkaður fiskur fer frystur á bretti. Togkraftur skipsins er 67 tonn, vinnsludekkið er 580 fermetrar og rúmmál lestarinnar 1.720 rúmmetrar.

Endursagt úr Fiskifréttum Viðskiptablaðsins.