- Forsíða
- Um okkur
Um okkur
Nesfiskur ehf. var stofnað í maí 1986 af Baldvini Njálssyni og fjölskyldu hans, sem rak áður Fiskverkun Baldvins Njálssonar.
Í Garðinum rekur Nesfiskur frystingu, ferskfiskvinnslu, saltfiskverkun, skreiðar- og hausaþurrkun. Þá er Nesfiskur með frystingu og ferskfiskvinnslu í Sandgerði.
Þorbjörg Bergsdóttir hóf útgerð og fiskvinnslu með eiginmanni sínum, Baldvini Njálssyni, árið 1965. Fyrstu árin var útgerðin smá í sniðum en hófst af fullri alvöru 1973. Allt hófst þetta með því að Baldvin keypti bát með föður sínum, Njáli Benediktssyni, og Sveini Björnssyni. Sá bátur var gerður út í þrjú ár og þá seldur.
Þá var gert hlé á útgerð til ársins 1973 þegar Baldvin Njálsson fór í rekstur með Kjartani Mássyni. Það samstarf var í tvö ár. Þá var stofnuð Fiskverkun Baldvins Njálssonar. Frá árinu 1986 hefur fyrirtækið verið rekið undir nafni Nesfisks.
Bergþór Baldvinsson framkvæmdastjóri er sonur Baldvins Njálssonar og Þorbjargar Bergsdóttur. Nýjasta skipið, hátæknifrystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400, bættist í flotann í nóvember 2021.



Nesfiskur í tölum
Fyrirtækið hefur leigt til sín talsvert af heimildum og keypt fisk á markaði eftir þörfum vinnslunnar.
Nesfiskur er meðal stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins.
yfir úthlutaðar aflaheimildir.
og margir hafa verið lengi hjá fyrirtækinu.
en samfellda sögu má rekja aftur til 1965.
Sagan
- 1965
Útgerð og fiskvinnsla hefst
Þorbjörg Bergsdóttir hóf útgerð og fiskvinnslu með eiginmanni sínum, Baldvini Njálssyni. Baldvin keypti bát með föður sínum, Njáli Benediktssyni, og Sveini Björnssyni. Báturinn var gerður út í þrjú ár og þá seldur.
- 1973
Af fullri alvöru
Útgerðin hófst af fullri alvöru þegar Baldvin Njálsson fór í rekstur með Kjartani Mássyni. Það samstarf var í tvö ár og þá var stofnuð Fiskverkun Baldvins Njálssonar.
- 1986
Nesfiskur ehf. stofnaður
Í maí 1986 stofnuðu Baldvin Njálsson og fjölskylda hans Nesfisk ehf. Síðan hefur fyrirtækið verið rekið undir nafni Nesfisks.
- 2019
Samið um nýsmíði
Haustið 2019 var samið við Armon-skipasmíðastöðina í Vigo á Spáni um smíði nýs flakafrystitogara. Skipasýn hannaði skipið.
- 2021
Nýr Baldvin Njálsson kemur heim
Í nóvember 2021 kom frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 til hafnar í Keflavík, fyrsta nýsmíði fyrirtækisins á skipi af þessari stærð.
Nöfnin í flotanum
Saga fjölskyldu eigendanna speglast í nöfnum skipanna.
Ber nafn Baldvins Njálssonar, sem stofnaði Nesfisk ásamt Þorbjörgu Bergsdóttur konu sinni og fjölskyldu þeirra.
GK 49Pálína ÞórunnPálína Þórunn og Bergur Vigfús bera nöfn foreldra Þorbjargar.
GK 43Bergur VigfúsBer nafn föður Þorbjargar Bergsdóttur.
GK 33MargrétMargrét var systir Þorbjargar, og nafnið á Dóra kemur líka úr hennar ætt.
GK 200Sóley SigurjónsTengdamóðir Málfríðar, systur Bergþórs, og móðir Ingibergs Þorgeirssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra tækni- og þjónustusviðs.
GK 26Benni SæmBenni Sæm var langafi Bergþórs í föðurætt.
GK 5Siggi BjarnaBróðir langömmu Bergþórs. Fyrsti bátur Nesfisks bar nafnið Sigurður Bjarnason, sem síðan var stytt.
GK 138SigurfariNafnið kemur frá Vestmannaeyjum. Nesfiskur keypti bát þaðan með þessu nafni og það var notað áfram þegar hann var endurnýjaður.
Starfsstöðvar
Nesfiskur er umsvifamikill í atvinnulífi Suðurnesjabæjar, sem varð til við sameiningu Garðs og Sandgerðis.
Höfuðstöðvar Nesfisks. Í Garðinum rekur Nesfiskur frystingu, ferskfiskvinnslu, saltfiskverkun, skreiðar- og hausaþurrkun.
- — Höfuðstöðvar
- — Frysting
- — Ferskfiskvinnsla
- — Saltfiskverkun
- — Skreiðar- og hausaþurrkun
Starfsfólk og stefnur
Alls starfa yfir 300 manns hjá Nesfiski. Stjórn samstæðunnar hefur samþykkt jafnréttis- og jafnlaunastefnu sem nær til allra starfsmanna.