Meðal stærstu sjávar­útvegs­fyrirtækja landsins

Fjölskyldufyrirtæki í Garði sem gerir út skip og rekur fiskvinnslu í Garði, Sandgerði og á Hvammstanga. Afurðirnar eru ýmist seldar ferskar, frystar eða saltaðar.

Frá miðum til markaðar

Nesfiskur gerir út skip á troll, dragnót og línu og vinnur aflann í eigin vinnslum.

01

Veiðar

Floti Nesfisks spannar allt frá hátæknifrystitogaranum Baldvini Njálssyni GK 400 til smábáta.

  • Troll
  • Dragnót
  • Lína
Skoða flotann
02

Vinnsla

Fiskvinnsla í Garði og á tveimur stöðum í Sandgerði, Ný-Fiski og Fiskverkun Ásbergs, og rækjuvinnslan Meleyri á Hvammstanga.

  • Frysting
  • Ferskfiskvinnsla
  • Saltfiskverkun
  • Skreiðar- og hausaþurrkun
Starfsstöðvar
03

Afurðir

Afurðirnar eru ýmist seldar frystar, ferskar eða saltaðar. Keyptur er fiskur á markaði eftir þörfum vinnslunnar.

  • Fersk
  • Fryst
  • Léttsaltað (IQF)
  • Saltað
Afurðir

Framleiðslan okkar

Veldu tegund eða meðferð til að sjá pökkun, latneskt heiti og myndir af afurðunum.

Allar afurðir
NesfiskurNESFISKUR EHF · GARÐUR · ICELAND

Þorskur

Gadus morhuaCod
Þorskur – teikning
MEÐFERÐ
Ferskur, léttsaltaður (IQF), saltaður eða frystur
PÖKKUN / FRYSTING
Flök, stærðarflokkað og millilagt 3×9 kg
ÖNNUR HEITI
Bacalao, Cabillaud, Kabeljad, Torks, Treska, Madara
FersktLéttsaltað (IQF)SaltaðFrystSjófryst
Þorskur – Flak með roði
Flak með roði
Þorskur – Roðflett flak
Roðflett flak
Þorskur – Hnakki
Hnakki

Flotinn í réttum hlutföllum

Frá 65,6 metra frystitogara niður í tólf metra krókaaflamarksbát.

Allur flotinn
Baldvin Njálsson GK 400 – 65,6 mSóley Sigurjóns GK 200 – 41,98 mSigurfari GK 138 – 28,91 mPálína Þórunn GK 49 – 28,62 mSiggi Bjarna GK 5 – 21,5 mBenni Sæm GK 26 – 21,5 mBergur Vigfús GK 43 – 12,4 mMargrét GK 33 – 11,99 m
0 m102030405060

Skipin eru teiknuð eftir lengd, frá stefni. Teikningarnar sýna gerð skips en ekki nákvæmt útlit. Smelltu á skip til að sjá nánari upplýsingar.

Brúin í Baldvini Njálssyni GK 400

Nýr Baldvin Njálsson

Tímamót voru hjá Nesfiski í nóvember 2021 er nýr glæsilegur frystitogari bættist í flotann. Skipið er fullkomið hátækniskip og um leið fyrsta nýsmíði fyrirtækisins á skipi af þessari stærð.

Lengd
65,6 m
Brúttótonn
2.879
Lest
1.720 m³
Aðalvél
3.000 kW
Um skipið

Starfsstöðvar

Höfuðstöðvar í Garði, vinnsla á tveimur stöðum í Sandgerði og rækjuvinnsla á Hvammstanga.

HvammstangiGarður og Sandgerði
Suðurnes

Höfuðstöðvar Nesfisks. Í Garðinum rekur Nesfiskur frystingu, ferskfiskvinnslu, saltfiskverkun, skreiðar- og hausaþurrkun.

  • — Höfuðstöðvar
  • — Frysting
  • — Ferskfiskvinnsla
  • — Saltfiskverkun
  • — Skreiðar- og hausaþurrkun

Fjölskyldufyrirtæki frá 1965

Saga fjölskyldu eigendanna speglast í nöfnum skipanna.

Sagan og nöfnin í flotanum
  1. 1965

    Útgerð og fiskvinnsla hefst

    Þorbjörg Bergsdóttir hóf útgerð og fiskvinnslu með eiginmanni sínum, Baldvini Njálssyni. Baldvin keypti bát með föður sínum, Njáli Benediktssyni, og Sveini Björnssyni. Báturinn var gerður út í þrjú ár og þá seldur.

  2. 1973

    Af fullri alvöru

    Útgerðin hófst af fullri alvöru þegar Baldvin Njálsson fór í rekstur með Kjartani Mássyni. Það samstarf var í tvö ár og þá var stofnuð Fiskverkun Baldvins Njálssonar.

  3. 1986

    Nesfiskur ehf. stofnaður

    Í maí 1986 stofnuðu Baldvin Njálsson og fjölskylda hans Nesfisk ehf. Síðan hefur fyrirtækið verið rekið undir nafni Nesfisks.

  4. 2019

    Samið um nýsmíði

    Haustið 2019 var samið við Armon-skipasmíðastöðina í Vigo á Spáni um smíði nýs flakafrystitogara. Skipasýn hannaði skipið.

  5. 2021

    Nýr Baldvin Njálsson kemur heim

    Í nóvember 2021 kom frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 til hafnar í Keflavík, fyrsta nýsmíði fyrirtækisins á skipi af þessari stærð.

Viltu vinna hjá Nesfiski?

Alls starfa yfir 300 manns hjá Nesfiski og margir hafa verið lengi hjá fyrirtækinu. Sæktu um á sjó eða í landvinnslu.