
Glæsilegur frystitogari í Garðinn. Fullkomið hátækniskip.
Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 kom til hafnar í Keflavík eftir hádegi á þriðjudag eftir að hafa þeytt skipslúðra og tekið einn góðan hring utan við Garðinn, þar sem höfuðstöðvar Nesfisks eru. Nýr Baldvin Njálsson er smíðaður af Armon-skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni þar sem fulltrúar útgerðarinnar tóku við skipinu í síðustu viku.
Skipið er 65,6 metrar að lengd og sextán metrar að breidd. Það er 2.879 brúttótonn. Lestin er 1.720 rúmmetrar.
Um borð í skipinu eru sex einstaklingskáetur og ellefu tveggja manna káetur. Skipið rúmar því tuttugu og átta manna áhöfn. Skipstjóri er Arnar Óskarsson og hann sigldi skipinu heim. „Þetta er magnað hátækniskip og heimferðin gekk vel,“ sagði skipstjórinn. Um borð á heimsiglingunni var einnig Þorbjörg Bergsdóttir, ein af eigendum útgerðarinnar.



