1. Forsíða
  2. Flotinn
  3. Baldvin Njálsson GK 400

Baldvin Njálsson GK 400

Frystitogari

Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 var smíðaður hjá Armon-skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni árið 2021. Skipið er 65,6 metrar að lengd og sextán metrar að breidd. Það er 2.879 brúttótonn og lestin er 1.720 rúmmetrar. Hann er búinn 3.000 kW Wärtsilä aðalvél. Um borð eru sex einstaklingskáetur og ellefu tveggja manna káetur og rúmar skipið 28 manna áhöfn.

Baldvin NjálssonGK 400
Tegund
Frystitogari
Smíðaár
2021
Smíðaður
Armon, Vigo á Spáni
Hönnun
Skipasýn
Lengd
65,6 m
Breidd
16 m
Brúttótonn
2.879
Lest
1.720 m³
Aðalvél
Wärtsilä, 3.000 kW
Skrúfa
5 m í þvermál
Togkraftur
67 tonn
Vinnsludekk
580 m²
Fjöldi í áhöfn
26 hverju sinni, tvær áhafnir

Skipstjórar

Arnar Óskarsson og Þorsteinn Eyjólfsson

Sími um borð

852-1690 851-2245

Nafnið

Ber nafn Baldvins Njálssonar, sem stofnaði Nesfisk ásamt Þorbjörgu Bergsdóttur konu sinni og fjölskyldu þeirra.

Um borð

Fyrsta nýsmíði Nesfisks á skipi af þessari stærð.

Lesa fréttina

Vöruhótel og brettavæðing

Í skipinu er vöruhótel með þjarka sem tegundar- og stærðarflokkar og beinir afurðum að sjálfvirkum pökkunarbúnaði. Brettastaflari staflar pökkuðum afurðum á bretti, svo við löndun eru þau tilbúin og tegundarflokkuð til útflutnings.

Tvær brettavæddar lestar

Milligólf er eftir lestinni endilangri. Það gefur eins eða tveggja bretta hæð í hvorri lest í stað allt að fjögurra bretta hæðar í einni lest, sem er ákjósanlegt upp á stöflun í vondum veðrum og notkun lyftara.

Sparneytið skip

Olíunotkun næst verulega niður með nýrri hönnun skipskrokks og framdriftarkerfi, þar með talinni stórri skrúfu. Lögð er áhersla á bætta aðstöðu fyrir mannskapinn og betri meðferð afla.

Aðbúnaður áhafnar

Í skipinu eru tvær stórar setustofur, líkamsrækt og gufubað, og vistarverurnar eru allar aftast í skipinu.